Eins og líklega allir hafa tekið eftir þá hef ég ekki verið dugleg að blogga og það sama má segja um mataræðið. Hef ekki haft neina stjórn á þessu, er ábyggilega eins og versti alkóhólisti nema ég sukka í mat og nammi.
Það sem ég hef látið ofan í mig síðustu vikur er gífurlegt magn af óhollustu og líður mér alls ekki vel með þetta.
Ég fór í seinustu viku á fund hjá GSA eftir að hafa lesið mér til á síðunni þeirra og hef ákveðið að prófa þetta og ég vona svo sannarlega að þetta geti hjálpað mér því ef þetta gengur ekki þá veit ég hreinlega ekki hvað gerir það.
Ég er komin með æðislegan sponsor og ætla að taka þessu með opnum huga og hef ákveðið að gefa mig alla í þetta, það tekur líklega einhvern tíma að venjast þessu og ég ætla að gefa mér mánuð í að venjast þessu.
Ég hef einnig ákveðið að verðlauna mig og það verður ekki eftir kílóum heldur eftir dagafjöldanum sem ég hef verið í fráhaldi eins og það er kallað þegar maður heldur sig frá þessum óholla mat.
Ég byrja á þessu prógrami á morgun og þegar ég hef náð tveimur vikum í þessu þá ætla ég að leyfa mér að fara í litun og klippingu (þarf að fara í litun núna en ætla ekki að leyfa mér það fyrr en ég hef náð þessum tveimur vikum)
Ég hef ekki þorað að stíga á vigtina í nokkurn tíma en ég veit að hún hefur farið eitthvað upp. Ég ætla að vigta mig í fyrramálið og set inn tölu þá.
Þið megið endilega fylgjast með þessu hjá mér og þið megið endilega láta mig vita í comments, það hjálpar helling að vita af ykkur að fylgjast með mér